Nýtt efni!

Erum stöðugt að vinna í síðunni. Höfum bætt við efni undir „Verkjastillingar“, nýjum og spennandi greinum, bæði erlendum og íslenskum, ásamt ýmsu öðru skemmtilegu.
Njótið vel!

Kynningarfundur 13. febrúar á Akureyri

Kynningarfundur samtakanna verður þann 13. febrúar kl 14 – 16 í Orkulundi – heilsumiðstöð, Viðjulundi 1, 600 Akureyri.
Á fundinum verður starfsemi samtakanna kynnt og nýjir félagsmenn teknir inn auk þess sem sagðar verða reynslusögur kvenna af fæðingum og undirbúningi fyrir þær. Ljósmæðurnar Málfríður Stefanía Þórðardóttir og Inga Vala Jónsdóttir flytja erindi. Allir velkomnir;)

  • Flokkar